Hrafnaklettur 2

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Hrafnaklettur 2, 310 Borgarnes, rúmgóð 3ja herbergja íbúð, merkt 301 á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi byggt 1983.  Íbúðin er 90,8 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS, þar af er 6 fm sérgeymsla í kjallara. Sérmerkt bílastæði næst inngangi fylgir íbúðinni. sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymsla er í kjallara.

Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús með borðkrók, borðstofu/stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing:
Forstofa: Góðir fataskápar, parket á gólfi.
Eldhús: Upprunaleg innrétting með efri skápum, eldhúskrókur. Dúkur á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með fallegu útsýni. Gengið er út á SV svalir. Parket á gólfi
Hjónaherbergi: Góður nýlegur fataskápur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Laus fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi: Allt nýuppgert. Flísalagt í hólf og gólf, Walk- in sturta, vegghengt salerni og handlaug í hvítri innréttingu.
Geymsla: Lokuð rúmgóð geymsla með glugga á sameignargangi. 

Sameign: Flísalagt anddyri, þvottahús og vagna/hjólageymsla. 

Eftirfarandi hefur verið endurnýjað: Gluggar í herbergjum, eldhúsi og baðherbergi. Svalagólf flotað og sett nýtt handrið.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 8650350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 38.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 34.900.000 ISK
Brunabótamat 49.700.000 ISK
Stærð 90.8 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1983
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 15.10.2024