Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Brattahlíð 36, 270 Mosfellsbær. Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi í nýlegu tveggja hæða fjölbýlishúsi byggt 2021 . Eignin er 111.4 fm skv. skráningu FMR.
Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi innaf anddyri, gang, tvö svefnherbergi á gangi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu, alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu og sameiginlega vagna/hjólageymslu.
Aukin lofthæð er í íbúðinni. Vinilparket er á öllum gólfum fyrir utan votrými og í forstofu, þar eru flísar. Sérsmíðaðar eikarinnréttingar frá Brúnás. Eikarhurðar frá Parka. Heimilistæki eru vönduð tæki frá Simens. Hreinlætistæki eru frá Grohe. Varmaskiptir er á neysluvatni.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísalagt með fataskáp.
Svefnherbergi: eru 3 fataskápar í öllum herbergjum og rúmgóðir skápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, ljósakappa með ledlýsingu og spegli. Hreinlætis og blöndunartækjum frá Grohe, veggsalerni og sturtu. Góð sérsmíðuð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á baðherbergi ásamt loftræstingu.
Geymsla: Uþb. 6fm
Eldhús: Rúmgott með miklu skápaplássi og góðu vinnurými. Vönduð eikarinnrétting frá Brúnás. Skápar og skúffur með mjúklokun. Efri skápar ná upp í loft. Blöndunartæki frá Grohe. Eldhústæki eru frá Simens þ.a.s bakarofn, háfur og spanhelluborð.
Stofa og borðstofa: Er í alrými með eldhúsi og er útgengt út góðar svalir.
Vagna og hjólageymsla á neðrí hæð.
Bílastæði eru malbikuð og ídráttarrör til staðar fyrir hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.
Góð staðsetning. Stutt í miðbæ Mosfellsbæjar, verslanir og aðra þjónustu. Lágafellssundlaug,skólar, leikskólar og golfvöllur í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup m.v. 50% eignarhlut eða meira og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
Tegund | Hæðir |
Verð | 85.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 80.000.000 ISK |
Brunabótamat | 57.750.000 ISK |
Stærð | 111.4 fermetrar |
Herbergi | 4 |
Svefnherbergi | 3 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 2021 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 07.11.2024 |