Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Þórólfsgata 12a.
Um er að ræða 5 herbergja íbúð merkt 101 á jarðhæð í þríbýlishúsi að Þórólfsgötu 12a með sérinngangi. Íbúðin er 120,2, fm að stærð skv. skráningu FMR. Steypt bílastæði. Mikið endurnýjað hús. Góð staðsetning.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í flísalagða forstofu. Þar á forstofugangi er herbergi. Af forstofugangi er komið inn í hol. Þaðan er gengið inn í aðrar vistarverur sem eru 2 herbergi, baðherbergi, eldhús og samliggjandi stofur. Gengið er niður steyptar tröppur i kjallara en hluti hans fylgir íbúðinni.
Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi.
Svefnherbergi parket á öllum gólfum, skápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi allt uppgert. Vegghengt salerni, vatnsþolið parket á gólfi og veggir klæddir með fibo trespo plötum. Sturtuklefi og lítil hvít innrétting.
Eldhús góð hvít innrétting með helluborði og uppþvottavél í innréttingu, borðkrókur. rúmgott búr er inn af eldhúsinu.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi björt og gott útsýni, parket á gólfi.
Húsið er mikið endurnýjað. Öll klæðning á ytra byrði hússin er endurnýjuð og húsið einangrað að utan. Þá voru einnig settir nýjir gluggar og þakefni. Rafmagnstafla er ný og raflagnir endurnýjaðar að hluta. Neysluvatnslagnir eru nýjar og hitavatnslagnir endurnýjaðar að hluta.
Áhugaverð eign með fallegu útsýni, góð staðsetning og stutt í alla þjónustu.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.
Eigindi eignar
Tegund | Hæðir |
Verð | 47.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 31.750.000 ISK |
Brunabótamat | 44.800.000 ISK |
Stærð | 127.9 fermetrar |
Herbergi | 5 |
Svefnherbergi | 3 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1948 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 05.12.2024 |