Dílahæð – SELD 5

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Eignin er seld með fyrirvara!

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Dílahæð 5, 310 Borgarnes.
Um er að ræða steinsteypt 6 herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt stakstæðum bílskúr.  Samtals er eignin 200,4 fm að stærð, samkvæmt skráningu HMS, þar af er bílskúr 33,1 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Gestasalerni: Flísar á gólfi og fibo-tresbo á veggjum, vegghengt salerni og vaskur með spegli.
Hol: Parketlagt, útgengt út á pall úr holi.
Herbergi: Eru 5, parket á gólfum og skápar í herbergjum.
Baðherbergi: Er með sturtu og baðkari. Vegghengt salerni. Flísar á gófli og fibo-tresbo á veggjum, innrétting.
Eldhús: Korkflísar á gólfi. Ágæt innrétting. Helluborð, ofn og uppþvottavél.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi. Flísar á gólfi, vaskaborð og fataskápur.. Gengið er úr þvottahúsi út á stétt milli hússins og bílskúrs.
Stofa og borðstofa: Eru á pöllum, parket á gólfi, borðstofa á efri palli innaf eldhúsi, stofa á neðri palli, arinn í stofu.
Bílskúr: Með rafmagnsopnun á hurð. Gengt út á bílaplan og baklóð.
Sólpallur: Timbur með skjólveggjum

Þakefni sýnist í góðu lagi. Búið er að endurnýja glugga að hluta. Þeir gluggar sem eru upprunalegir þarfnast endurnýjunar. Innréttingar hafa verið endurnýjaðar og parket að hluta. 

Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun og afhendist við kaupsamning. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 84.500.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 72.500.000 ISK
Brunabótamat 99.920.000 ISK
Stærð 200.39999847412 fermetrar
Herbergi 6
Svefnherbergi 5
Baðherbergi 2
Byggingarár 1976
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 15.01.2025