Arnarklettur- SELD 18

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Eignin er seld með fyrirvara!

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:

Arnarklettur 18, 310 Borgarnesi.
Um er að ræða mikið endurnýjað, 5 herbergja, steinsteypt parhús á einni hæð, 125,3 fm. að stærð, byggt árið 1984 skv. skráningu HMS. 

Nánari lýsing:
Gengið er inn í anddyri. Þar á hægri hönd er forstofuherbergiEldhús er innaf á vinstri hönd og gestasnyrting á hægri hönd. Borðstofa og stofa mynda rúmgott alrými, gengið er úr stofu út á sólpall með lýsingu og góðum skjólveggjum. 3 svefnherbergi eru á svefnherbergisgangi ásamt baðherbergi og þvottahúsi.  Gengt er úr þvottahúsi út á baklóðina.

Anddyri: Flísar á gólfi og fataskápur.
Forstofuherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. 
Eldhús: Flísar á gólfi og nýleg hvít innrétting með helluborði og gufugleypi.
Gestasnyrting:  Flísalagt í hólf og gólf, vegghengt salerni og walk-in sturta.
Borðstofa og stofa: Flísar á gólfi. Rúmgóð og björt. Úr stofunni er gengið út á sólpall með skjólveggjum.
Svefnherbergi: Parket á gólfum, rúmgóður nýr fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, vegghengt salerni, góð innrétting og baðkar.  
Þvottahús: Málað gólf, ný innrétting sem rúmar 3 vélar, gengt út á baklóð.
 
Eftirfarandi endurbætur hafa verið gerðar á eigninni:
Þakefni og rennur, vatnslagnir endurnýjaðar og settur varmaskiptir á neysluvatnið. Gólfefni endurnýjað á öllum gólfum nema þvottahúsi. Nýlegar innihurðir yfirfelldar og skipt um glugga nema á norðurhlið hússins. Húsið var múrviðgert að utan 2021/22 og málað 2023. Nýtt eldhús ásamt tækjum árið 2022/23 og nýjir fataskápar í hjónaherbergi. Hleðslustöð fyrir rafbíla sett upp við bílastæði haustið 2023 og tengt 3ja fasa rafmagn og rafmagnstafla endurnýjuð. Innrétting í þvottahús árið 2024.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 65.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 53.500.000 ISK
Brunabótamat 68.700.000 ISK
Stærð 125.3 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 1984
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 15.01.2025