Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Vindás 4, 310 Borgarnes, 32% eignarhluta af heildareigninni að Vindási 4. Birt stærð skv. FMR er 66 fm.
Um er að ræða ágætt hesthús byggt 1976 sem samanstendur af 5 stíum, kaffistofu og salerni.
Nánari lýsing:
Í húsinu eru tvær 2ja hesta og þrjár 1 hesta stíur. Drenmottur og niðurföll eru í stíugólfi.
Góð aðstaða er til að taka inn heyrúllur og til járninga.
Upphituð kaffistofa og salerni. Búið er að leggja lagnir fyrir gólfhita í hluta hússins en þær eru ótengdar. Húsið er ekki tengt við hitaveitu.
Nýr stofn fyrir rafmagn. Geymsluloft yfir hluta hússins. Nýtt járn á þaki og sett vifta í lofttúðu til að bæta loftgæði inni..
Sameiginlegt gerði er fyrir húsið.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Eigindi eignar
Tegund | Hesthús |
Verð | 7.800.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 4.865.000 ISK |
Brunabótamat | 12.900.000 ISK |
Stærð | 66.4 fermetrar |
Herbergi | 0 |
Svefnherbergi | 0 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 1976 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 04.02.2025 |