Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Hrafnaklettur 8, 310 Borgarnes.
Um er að ræða bjarta 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 1981. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð með smekklegum hætti og einnig hefur sameign hússins verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Húsið er málað og múrviðgert að utan og í góðu ástandi. Skipt hefur verið um glugga og svalahurð í stofu. Íbúðin er 62,7 fm að stærð ásamt 4,5 fm geymslu í kjallara, samtals stærð er því 67,2 fm skv. skráningu FMR.
Nánari lýsing:
Sameign, stigagangur er teppalagður.
Gengið er inn í lítið hol. Þar er rúmgóður fataskápur á vegg.
Stofan er björt með parket á gólfi. Gengt er úr stofu út á suðvestur svalir með góðu útsýni.
Eldhús er aðskilið stofu með vegg að hluta. Falleg dökk sérsmíðuð innrétting. Öll tæki eru frá Samsung. Innbyggð uppþvottavél í innréttingu og skápur fyrir örbylguofn fyrir ofan bakarofn í innréttingu. Soft close hurðir og skúffur.
Baðherbergi er allt uppgert með vönduðum hætti. Flísar í hólf og gólf. Dökk innrétting. Upphengt salerni og sturta. Handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi er rúmgott, rúmgóðir dökkir fataskápar á vegg.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð að miklum hluta. Innihurðir eru nýlegar frá Rodos. Allar innréttingar eru smekklegar og í sama stíl. Ljósleiðari er í íbúðinni. Harðparket (Tarket) er á öllum gólfum utan votrýmis, þar eru flísar.
Gluggi í svefnherbergi er kominn til ára sinna og þarfnast viðhalds/endurnýjunar.
Hér er um mjög fallega, vel staðsetta íbúð að ræða sem hefur verið endurnýjuð með vönduðum hætti.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nes fasteignasala hvetur því væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 35.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 29.450.000 ISK |
Brunabótamat | 34.500.000 ISK |
Stærð | 67.2 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 1 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1981 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 11.03.2025 |