Borgarbraut 33D HLUTDEILDARLÁN

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Borgarbraut 33D, 310 Borgarnes.
Um er að ræða fallega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjórbýli með sér inngangi. Húsið er endurnýjað með vönduðum hætti. Eignin er skráð 70,4 fm skv.skráningu HMS.

Eignin er samþykkt af HMS og uppfyllir skilyrði hlutdeildarlána. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari lýsing:                                                                                                                             
Gengið er af bílaplani upp timburstiga inn í rúmgóða forstofu. Stofa og eldhús eru þar innaf og mynda alrými. Úr alrými er síðan gengið í baðherbergi og svefnherbergið.
Loft eru upptekin og aukin lofthæð gefur íbúðinni skemmtilegan svip. Innihurðir eru yfirfelldar. Íbúðin var öll smekklega innréttuð 2023.

Anddyri flísar á gólfi og rúmgóðir fataskápar
Stofa parket á gólfum
Eldhús dökk rúmgóð eldhúsinnrétting með öllum tækjum, innbyggð uppþvottavél. Ísskápur getur fylgt með skv. nánara samkomulagi.
Baðherbergi með innréttingu, vegghengdu salerni, og walk-in sturtu. Flísar á gólfi og veggjum í sturtu.  Rúmgóðir skápar eru í baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og stórum fataskáp á heilum vegg.

Eftirfarandi endurbætur voru gerðar á eigninni árið 2022-23. Húsið var sprunguviðgert að utan sílað og málað.  Dren var sett meðfram öllu húsinu.  Skólplagnir endurnýjaðar út í götu og settur nýr brunnur. Þak yfir hluta hússins eða yfir íbúð 201 var endurnýjað, bæði sperrur og klæðning.  Allir gluggar og gler í húsinu eru nýjir og allar útidyr sömuleiðis.  Allt rafkerfi hússins var endurnýað sem og ofnar og vatnslagnir Plan er malbikað og hellulagt með hitalögn í stéttum. Ídráttarrör er í bílaplani svo hægt sé að leggja lagnir fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.

Góð staðsetning. Stutt í íþróttamannvirki og alla þjónustu sem eru í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Hæðir
Verð 45.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 33.400.000 ISK
Brunabótamat 42.500.000 ISK
Stærð 70.4 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1959
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 24.03.2025