Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir fasteignina Árbakka 311 Borgarnesi.
Um er að ræða 15% eignarhlut í jörðinni Árbakka í Andakílsárhreppi hinum forna.
Jörðin Árbakki er í óskiptri sameign með Þingnesi og telst vera 3/8 af heildarstærð jarðanna. Árbakki og Þingnes eru vel í sveit sett, neðarlega í tungu milli Grímár og Hvítár í Borgarfirði.
Nánari lýsing
Landi Árbakka er lýst með Þingnesi, jörðin liggur að Grímsá og Hvítá. Mikil veiðihlunnindi fylgja jörðunum og er veiðin í óskiptu með Þingnesi. Sameiginlegur hlutur beggja jarða í heildarveiði er 1070 einingar af 10.000 í arðskrá Veiðifélags Grímsár og 42 einingar af 1000 í Veiðifélaginu Hvítá. Neðantil er landið flatt og eru þar eyrar og valllendisbakkar með ánum. Þegar austar dregur eru ásar og smátjarnir að Blundsvatni.
Á Jörðinni er íbúðarhús byggt 1931 í sæmilegu ástandi og mjög léleg útihús.
Hér er um áhugaverða mjög eign í fallegu umhverfi að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 8650350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
| Tegund | Jörð/Lóð |
| Verð | 18.000.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 54.125.000 ISK |
| Brunabótamat | 76.250.000 ISK |
| Stærð | 194612.20000076 fermetrar |
| Herbergi | 0 |
| Svefnherbergi | 0 |
| Baðherbergi | 0 |
| Byggingarár | 0 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 14.04.2025 |












