Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu:
Stöðulsholt 31, 310 Borgarnes.
Húsið er vel staðsett 170 fm einbýlishús í grónu hverfi. Þar af er bílskúr 37,7 fm skv skráningu HMS Byggingarár hússins er 2022 og er hús og lóð smekklega frágengið með vönduðum hætti. Rúmgóður sólpallur er með 3 hliðum hússins. Bílastæði og stétt eru hellulögð.
Um er að ræða timburhús á steyptum grunni. Það er klætt að utan með lituðu báruáli, þak er með lituðu stáli og með góðum þakhalla. Þakkantur -rennur og niðurfallsrör smekklega frá gengin. Gráir litatónar á þaki, rústrautt báruál og lerki undir gluggum.
Gluggar og hurðir eru timbur/ál og allt ytra byrði því viðhaldslétt.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í rúmgóða forstofu. Þar á vinstri hönd er forstofuherbergi. Inn af forstofu er alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, upptekin loft, góðum gluggum og góðu útsýni. Gengt er úr stofu út á sólpall. 3 svefnherbergi og baðherbergi eru á svefnherbergisálmu. Þvotttahús er þar innaf. Gengt er úr þvottahúsi út á sólpall og einnig er innangegnt þaðan í bílskúr en inn af honum er geymsla.
Forstofa: Parket á gólfum, góður fataskápur.
Svefnherbergi: Eru 4, parket á gólfum og rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfum upptekin loft, gengt út á sólpall.
Eldhús: Rúmgóð dökk innrétting með eyju. Helluborð og háfur, Bakarofn og örbylguofn í innréttingu og innbyggð uppþvottavél. Ísskápur getur fylgt eftir samkomulagi.
Baðherbergi: Rúmgott. Microsement á veggjum og gólfi, vegghengt salerni og walk-in sturta. Góð hvít innrétting með haldklæðaofni á vegg.
Þvottahús: Rúmgott með útgengi út á sólpallinn. Epoxy á gólfum. Stór innrétting og mjög góð vinnuaðstaða. Úr Þvottahúsi er innangegnt í bílskúrinn.
Bílskúr: Epoxý á gólfum, rafdrifin bílskúrshurð og góð innrétting.
Geymsla: Er í enda bílskúrsins, epoxy á gólfum og gluggi með opnanlegu fagi.
Sólpallur er klæddur lerki. Skjólveggir hafa ekki verið settir upp.
Lóð og bílastæði er fullfrágengið. Bílastæði er hellulagt og gangstétt meðfram húsinu. Ecoraster jarðvegsgrind með möl í austuhluta lóðarinnar, hentugt sem auka bílastæði. Að öðru leyti er grasflatir og möl ásamt trágróðri.
Hér er um mjög góða eign að ræða. Fallegar gönguleiðir – skóli, leikskóli og þjónusta í næsta nágrenni í þessu vinsæla og vaxandi bæjarfélagi í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
Tegund | Einbýli |
Verð | 90.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 80.800.000 ISK |
Brunabótamat | 93.450.000 ISK |
Stærð | 169.80000076294 fermetrar |
Herbergi | 5 |
Svefnherbergi | 4 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 2022 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Já |
Garður | Já |
Skráð | 29.05.2025 |