Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir í einkasölu:
Jörðin Húsey í Skagafirði, 561 Varmahlíð.
Um er að ræða mjög vel staðsetta hlunnindajörð skammt frá Varmahlíð, í um 290 km akstursfjarlægð frá Reykjavík. Jörðin liggur milli Húseyjarkvíslar að vestan og Affallans að austan, sem er gamall farvegur Héraðsvatna.
Byggingar á jörðinni eru reisulegt 2ja hæða íbúðarhús með tveimur íbúðum, fjárhús og hlaða. Tún jarðarinnar eru 39.5 ha.
Áhugasamir geta bókað skoðun í gegnum netfangið fastnes@fastnes.is eða í síma 497-0040.
Nánari lýsing:
Jörðin er talin vera 124 ha að stærð samkvæmt Byggðasögu Skagafjarðar, en skráð stærð í landeignaskrá er 137.5 ha. Jörðin er öll sléttlend og grasi gróin. Landið er mjög frjósamt og þurrir bakkar með Húseyjarkvísl og Affallinum. Jörðin dregur nafn sitt af Húseyju, sem er landið sunnan við þar sem styst er milli Affalla og Húseyjarkvíslar en þar er einungis 10 – 15 metra haft á milli. Eyjan er öll graslendi og mestöll bakkaland. Byggingar og tún eru á norðari hluta landsins.
Húsey fylgir veiðiréttur í Húseyjarkvísl og á jörðin aðild að Veiðifélagi Húseyjakvíslar. Arðskrárhlutur jarðarinnar í veiðifélaginu eru 89 einingar af 1000. Húseyjarkvísl er ein af bestu og gjöfulustu sjóbirtingsám landsins, en þar veiðast einnig hátt á annað hundrað laxar á ári. Áin er þekktust fyrir rígvæna sjóbirtinga en þar veiðast einnig urriði og bleikja. Meðalveiði síðustu ára er um 650 silungar sem telst allgott. Vinsældir Húseyjarkvíslar hafa aukist hin síðari ár og arður eftir ána farið vaxandi.
Margir góðir veiðistaðir eru fyrir landi jarðarinnar. Þar má helst nefna Gömlu brú, Klapparhyl og Réttarhyl, sem er einn af bestu veiðistöðum árinnar.
Í Húseyjarkvísl er veitt á 3 stangir á sjórbirtingstímanum en 2 stangir um laxveiðitímabilið.
Byggingar á jörðinni:
Íbúðarhús byggt 1953 á sérmetinni útskiptri lóð. Húsið er steinsteypt og klætt að utan og einangrað. Húsið skiptist í tvær íbúðareiningar, á efri og neðri hæð og er hvor hæðin sérmetin í fasteignaskrá, Húsey 1, 0101 F2506020 og 0201 F2506534.
Neðri hæð skiptist í forstofu, rúmgott hol, eldhús, 2 svefnherbergi og stofu. Þar er parket á gólfum og upprunalegar innréttingar.
Efri hæðin skiptist í hol, eldhús, baðherbergi og 4 herbergi. Þar eru teppi á gólfum í herbergjum en flísar í baðherbergi. Innréttingar eru upprunalegar að mestu.
Skipt hefur verið um þak á húsinu, útidyrahurðir og glugga á neðri hæð.
Fjárhús byggð 1967, 370.5 fm að stærð. Steinsteypt bygging óeinangruð en veggir og þak í góðu ásigkomulagi.
Hlaða byggð 1966, 274.0 fm að stærð. Steyptir veggir og moldargólf að hluta. Bygging í góðu ásigkomulag.
Hér er um mjög álitlega hlunnindajörð að ræða. Mikil tækifæri í ferðaþjónustu og hestatengdri starfsemi, enda er gríðarlega sterk hefð fyrir hrossarækt og hestamennsku í Skagafirði. Góð staðsetning og fallegt útsýni, góðar göngu og reiðleiðir. Örstutt í grunnskóla, íþróttamannvirki og aðra þjónustu í Varmahlíð.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Eigindi eignar
Tegund | Jörð/Lóð |
Verð | 0 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 70.053.000 ISK |
Brunabótamat | 144.639.000 ISK |
Stærð | 395932.30000305 fermetrar |
Herbergi | 0 |
Svefnherbergi | 0 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 0 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 30.05.2025 |