Eyrarvegur 20

350 - Grundarfjörður

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu fasteignina:

Eyrarvegur 20, 350 Grundarfirði. Einbýlishús á tveimur hæðum byggt 1955 með stakstæðum bílskúr byggður 2007.

Bókið skoðun á fastnes@fastnes.is eða í síma 497-0040.

Um er að ræða steinsteypt hús, járnklætt að utan. Húsið er 130.3 fm að stærð ásamt 38.5 fm bílskúr. Samtals er fasteignin 168,1 fm að stærð skv. skráningu HMS. 

Nánari lýsing:
Gengið er í forstofu á neðri hæð, þar innaf er herbergi, seturými og þvottahús. Hringstigi er milli hæða.  Efri hæðin skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Sólpallar með skjólveggjum eru við húsið.  

Neðri hæð:
Forstofa og gangur: Flísalagt með gólfhita. Fatahengi og skápur. 
Herbergi: Plastparket. 
Seturými/hol: Flísar á gólfi og þvottahús þar innaf.
Þvottahús: Steingólf lakkað, upphengdar hillur og mikið geymslupláss.

Efri hæð:
Stigi milli hæða
 Hringstigi með tréþrepum.
Eldhús: Steinflísar á gólfi. Hvít lökkuð Ikea innrétting. Stór skápaveggur með plássi fyrir stóran ísskáp,  bakarofn á vegg, lokaður skápur fyrir örbylgjuofn og útdraganlegum hillur. Neðri skápar eru skúffur,  og opnar hillur. Uppþvottavél innbyggð í innréttingu. Góður borðkrókur.
Herbergi: Eru 2 á hæðinni. Parket á gólfum og skápar í báðum. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, skápur undir vaski og hillur. Vegghengt salerni, baðkar og handklæðaofn..
Stofa: Steinflísar á gólfi og svalahurð út á sólpall.
Sólpallur: Gengt úr stofu, timburpallur með skjólveggjum og steyptur pallur með vesturhlið  húsins. Útsýni yfir fjörðinn og kirkjufell. 
Geymsluloft: Manngengt að hluta. 

Bílskúr: Málað gólf, góð rafdrifin bílskúrshurð.
 
Mjög vel staðsett einbýlishús með góðu útsýni yfir Grundarfjörð og Kirkjufell.  

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 45.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 34.750.000 ISK
Brunabótamat 74.400.000 ISK
Stærð 168.09999923706 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 1955
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 11.06.2025