Lýsing eignar
Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Kveldúlfsgata 28, 310 Borgarnesi.
Um er að ræða mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á annarri hæðí fjölbýlishúsi.
Íbúðin er 74.8, fm að stærð skv. skráningu FMR. Svalir 6.7 fm móti suðri. Að auki er sér geymsla í kjallara.
Fasteignamat næsta árs 2026 er kr. 36.050.000.-
Nánari lýsing:
Anddyri er flísalagt og teppalagður stigagangur í sameign. Úr holi er gengið í tvö herbergi, eldhús, baðherbergi og stofu.
Nýlegt plastparket er á öllum gólfum fyrir utan flísar á baðherbergi.
Hol er rúmgott.
Svefnherbergin eru bæði með nýlegum fataskápum.
Eldhúsið er nýlega uppgert með dökkri rúmgóðri innréttingu, innbyggð uppþvottavél og kæli- og frystiskápur í innréttingu fylgir.
Baðherbergið er nýlega uppgert með flísum á gólfi og „walk in“ sturtu.
Stofa er björt og rúmgóð, og þaðan er gengið út á suðursvalir.
Geymsla er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Þvottahús er í sameign í kjallara með þvottavél til sameiginlegra nota. Komið er að viðhaldi á sameign hússins. Skipta þarf um járn á þaki og fara í lagfæringar á ytra byrði.
Eftirfarandi hefur verið endurnýjað á síðustu árum:
Nýtt gólfefni og gólflistar, nýtt eldhús og skápar í svefnherbergjum, allar hurðir endurnýjaðar og öll íbúðin máluð. Forhitari er á neysluvatni og neysluvatnslagnir í húsinu nýlega endurnýjaðar.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala, Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 41.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 32.600.000 ISK |
Brunabótamat | 40.000.000 ISK |
Stærð | 74.8 fermetrar |
Herbergi | 3 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 1 |
Byggingarár | 1977 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 05.08.2025 |