Sóltún 19

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Sóltún 19, Hvanneyri, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða 4 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr. Húsið er byggt úr timbri árið 2005 og er 136.2 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af er sambyggður bílskúr 27,7 fm. 

Gengið er í forstofu. Þar innaf er alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.  Úr alrými er gengið í 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Gengt er úr stofu og bílskúr út á lóðina.
 
Nánari lýsing:

Forstofa flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa flísar á gólfi og gengt út á baklóð
Eldhús flísar á gólfi, innrétting með helluborði, bakarofni og stæði fyrir uppþvottavél. Eldhúsinnréttingin er komin til ára sinna og farin að láta á sjá,
Svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskápar. Stór fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Fibo Trespo á hluta veggja. Baðkar og innrétting. 
Þvottahús er með flísum á gólfi, vaski og lítilli innréttingu. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr.
Bílskúr er með steyptu gólfi og góðri bílskúrshurð. 
 
Bílaplan er malarborið og grasflöt á lóðinni.
 
Á Hvanneyri er bæði skóli og leikskóli.  Stutt í alla aðra þjónustu í Borgarnesi.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 56.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 52.350.000 ISK
Brunabótamat 56.360.000 ISK
Stærð 136.20000076294 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 2005
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 14.08.2025