Lýsing eignar
Eignin er seld með fyrirvara!
Nes fasteignasala ehf kynnir:
Sóleyjarklettur 12, 310 Borgarnes íb. 102. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða nýbyggingu, eignin er 83,86 fm ásamt 6,6 fm sérgeymslu á geymslugangi á jarðhæð, samtals stærð 90,2 fm skv. skráningu FMR.
Gólf á baðherbergjum eru flísalögð en önnur gólf með harðparketi. Innréttingar eru frá AXIS, parket á gólfum frá Birgison og flísar frá Álfaborg.
Íbúðin er fullbúin og laus til afhendingar við kaupsamning. Verið er að vinna í lokafrágangi á lóðinni.
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang í anddyri, þar innaf eru 2 svefnhergi og baðherbergi, gengið er úr anddyri í rúmgott alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu, gengið er úr stofu út á svalir, möguleiki er á að bæta við þriðja svefnherberginu inn af stofu.
Mjög vandaðar íbúðir í nýju spennandi hverfi í Borgarnesi.
Skilalýsing frá seljanda liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala, Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 63.700.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 44.950.000 ISK |
| Brunabótamat | 0 ISK |
| Stærð | 91.4 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2023 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 08.09.2025 |






























