Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Réttarholt 6, 310 Borgarnes.
Um er að ræða rúmgott og mikið endurnýjað steinsteypt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt tvöföldum stakstæðum, bílskúr, á vinsælum og rólegum stað í Borgarnesi.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Heildarstærð fasteignarinnar er 204,8 fm skv. skráningu HMS, þar af er bílskúrinn 50,2 fm.
Húsið skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol, svefnherbergisálmu sem á eru 4 svefnherbergi og baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og þvottahús með geymslu þar innaf. Góður sólpallur á lóðnni. Steypt stétt og malarborið plan.
Nánari lýsing
Anddyri: Flísar á gólfi og gólfhiti. Fatahengi.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi, lítil innrétting og gólfhiti.
Hol: Er samliggjandi stofu, rúmgott með parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt. Arinn er í stofu sem setur mikinn svip á rýmið. Gengið er úr borðstofu út á rúmgóða timburverönd.
Eldhús: Parket á gólfi. Góð innrétting með helluborði, bakarofn í vinnuhæð og uppþvottavél. Eldhúsið og tæki allt endurnýjað 2017.
Svefnálma: Parketlagður gangur.
Svefnherbergi: Öll með parket á gólfum. Rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og fibo baðplötur á veggjum. Vegghengt salerni og innrétting. Gólfhiti og flísalögð walk-in sturta. Baðherbergi og tæki endurnýjað 2017.
Þvottahús: Flísar á gólfi og gólfhiti. Gengið er úr þvottahúsi út á baklóðina og þar er gert ráð fyrir heitum potti.
Geymsla: Er inn af þvottahúsi, hillur og málað gólf.
Bílskúr: Mjög rúmgóður. 2 góðar innaksturshurðir, skápar og vinnuborð. Málað gólf vatn hiti og rafmagn. Gengt úr bílskúr út á bílaplan milli húsa.
Lóðin er skjólsæl með með veglegum sólpalli og skjólveggjum.
Húsið er mikið endurnýað. Múrskemmdir á hús og bílskúr er viðgert og eignin öll máluð. Öll gólfefni voru endurnýjuð 2017 og gólfhiti settur í votrými og forstofu. Eldhús og böð voru endurnýjuð 2017 og skipt um innihurðir (yfirfelldar). Nýr þakassi á bílskúr. Þá eru öll vatnsinntök í húsið endurnýjuð og hluti af ofnum og ofnalögnum.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Einbýli |
| Verð | 89.000.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 73.850.000 ISK |
| Brunabótamat | 101.150.000 ISK |
| Stærð | 204.80000152588 fermetrar |
| Herbergi | 5 |
| Svefnherbergi | 4 |
| Baðherbergi | 2 |
| Byggingarár | 1980 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Já |
| Garður | Já |
| Skráð | 27.11.2025 |














































