Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Hamravík 28, 310 Borgarnes. Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 4ja herbergja parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Byggt úr forsteyptum einingum 1998. Eignin er samtals 143,2 fm að stærð skv. skráningu HMS. Þar af er bílskúr 29,7 fm.
Frábær staðsetning í rólegri botnlangagötu þar sem er skjól og fallegt útsýni.
Aukin lofthæð er í eigninni þar sem loft fylgja þakhalla í stofu, eldhúsi gangi og einu svefnherbergi. Samfellt nýtt parket er á stofu eldhúsi og gangi.
Forstofa: Flísar á gólfi, skápar.
Borðstofa: Parket á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting með beiki, veggofn, helluborð og vifta. Flísar á gólfum með gólfhita
Þvottahús: Innaf eldhúsi, hillur, vinnuaðstaða, innrétting, vaskur. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Stofa: Parket á gólfi. Björt og rúmgóð. Gengt er úr stofu út á sólpallinn.
Svefnherbergi: Eru 3, parket á gólfum, skápar í öllum herbergjum, stór fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, walk in sturta, hvít innrétting. Sturtuhluti endurnýjaður 2024.
Bílskúr: málað gólf, geymsluloft, hillur.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Par/Raðhús |
| Verð | 76.000.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 61.300.000 ISK |
| Brunabótamat | 81.800.000 ISK |
| Stærð | 143.2 fermetrar |
| Herbergi | 4 |
| Svefnherbergi | 3 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1998 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Já |
| Skráð | 14.12.2025 |
























































