Borgarbraut 57

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:

Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.
 
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri á 6. hæð í 7 hæða lyftuhúsi, merkt 0605 sem byggt var árið 2018. Íbúðin er 57,2 fm að stærð skv. skráningu FMR. Þar af er sér geymsla í kjallara sem skráð er 6,2 fm. Svalir eru 6.3 fm mót suðri með svalalokun. 

Nánari lýsing:
Sameign

Flísalagt anddyri, lyfta og teppalagður stigagangur í sameign.  
Íbúð Vinildúkur (parket) er á öllum gólfum utan votrýmis.
Forstofa með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með vegghengdu salerni, sturtu og  innréttingu. 
Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi.
Eldhús með smekklegri innréttingu og góðum AEG tækjum. 
Stofa er björt og þaðan er gegnt er út á suðursvalir með svalalokun. Mikið útsýni

Geymsla er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.                  

Íbúðin er mjög smekkleg og vel um gengin. Skipt hefur verið um alla glugga í íbúðnni vegna gallamála. Vinildúkur er á öllum gólfum utan votrýmis en nýtt parket fylgir með á alrými og svefnherbergi.

Hér er um mjög vel staðsetta íbúð að ræða, miðsvæðis í Borgarnesi. Örstutt í alla þjónustu og stórkostlegt útsýni um Borgarfjörð.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.       
 

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 43.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 38.600.000 ISK
Brunabótamat 35.600.000 ISK
Stærð 57.2 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 2018
Lyfta
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 09.01.2026