Ugluflöt 3

311 - Borgarnes (dreifbýli)

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu fasteignina:

Ugluflöt 3 Hvanneyri, 311 Borgarnes.
Um er að ræða vandaða nýbyggingu, parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, timburhús klætt með bárustáli og timbri.
Heildarstærð fasteignarinnar er 138,5 fm Þar af er  bílskúr í séreign 25 fm.

Eignin skilast fullkláruð, lóð jöfnuð í rétta hæð og plan malarborið með ruslatunnuskýlum. 30 fm sólpallur fylgir eigninni.
Eignin er í byggingu og er áætluð verklok í maí /júní 2026.

Nánari lýsing: 
Úr forstofu er gengið inn í alrými sem er samliggjandi stofa og eldhús. Á svefnherbergisgangi eru 2 svefnherbergi og baðherbergi og gengið er inn í þriðja svefnherbergið frá alrými.  Þvottahús og geymsla eru samliggjandi. Þaðan er innangengt er úr þvottahúsi í bílageymslu.

Væntanlegir kaupendur geta haft val um gólfefni og innréttingar.  Einnig er möguleiki að kaupa eingina tilbúna til innréttinga.
                                                                                                                                                                                                                       
Forstofa harðparket og fataskápur.
Stofa og borðstofa harðparket á gólfi og loft klætt með hljóðvistardúk.  Gengið er úr stofu út á sólpall.
Eldhús harðparket á gólfum.  Innrétting og tæki frá Ikea.
Svefnherbergi parket á gólfum, fataskápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi flísar í hólf og gólf. Innrétting, vegghengt salerni og walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum
Þvottahús flísar á gólfi.
Geymsla flísar á gólfi.
Bílskúr með epoxy á gólfi. Rafdrifin innaksturhurð.
 
Hér er um góða eign að ræða í barnvænu umhverfi.                                                                      

Hvanneyri er vaxandi þéttbýliskjarni.  Þar eru leikskóli og grunnskóli upp að 5. bekk á staðnum. Skólabíll gengur á Kleppjárnsreyki en þar er 6-10 bekkur grunnskólans.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Eigindi eignar

Tegund Par/Raðhús
Verð 69.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 39.500.000 ISK
Brunabótamat 0 ISK
Stærð 138.5 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 3
Baðherbergi 1
Byggingarár 0
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 07.02.2026