Kvíaholt 16

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:

Kvíaholt 16, 310 Borgarnesi. Um er að ræða mjög fallegt 159,6 fm einbýlishús með innbyggðum bílskúr á einni hæð byggt 2002. Þar af er bílskúr 29,9 fm skv. skráningu HMS.

Húsið er kanadískt einingahús, mjög vandað og lóðin skemmtilega frágengin með steyptu bílaplani og hellulagðri gangstétt sem gengur í sveig meðfram húsinu og afmarkast af lágum hlöðnum vegg. Gluggar eru með frönsku yfirbragði sem setur  skemmtilegan svip á húsið. 
Á lóðinni er rúmgóður sólpallur með háum skjólveggjum og heitum potti.
 
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð. Þar er þvottahús á vinstri hönd. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn. Úr forstofu er gengið inn í hol. Þaðan er gengið í baðherbergi, 2  svefnherbergi, eldhús og stofur. Gengið er úr borðstofu út á sólpallinn.
 
Forstofa: Flísar á gólfi og  stór fataskápur.
Þvottahús: Er mjög stórt með mjög rúmgóðri hvítri innréttingu góð vinnuaðstaða og mikið  skápapláss.  Gólf er flísalagt.
Bílskúr: Er með flísar á gólfi. Góð rafdrifin bílskúrshurð og göngudyr út á bílaaplan. Vinnuborð og verkfæraskápar á vegg.
Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi, fallegt og bjart rými, upptekið loft og  parket á gólfi. Mjög fallegur arinn í stofunni, flísalagur að hluta, setur skemmtilegan svip á rýmið.
Eldhús: Parket á gólfi. Mjög rúmgóð innrétting með eyju.  Helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Uppþvottavél er í innréttingu.
Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Sturta og hornbaðkar.  Hvít innrétting og vegghengt salerni. Gólfhiti er  í baðherberginu.
Svefnherbergi: Eru 2, bæði parketlögð með fataskáp. Fataskápar á heilum vegg í hjónaherbergi. 
 
Lóðin: Er falleg og vel hirt með grasflöt, runnum og trjágróðri og er aðkoma að húsinu frágengin og öll hin snyrtilegasta.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 82.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 79.000.000 ISK
Brunabótamat 90.150.000 ISK
Stærð 159.59999961853 fermetrar
Herbergi 4
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2002
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 16.02.2026