Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Borgarbraut 63, 310 Borgarnes, íbúð 201.
Um er að ræða stórglæsilega þriggja herbergja íbúð á 2 hæð í lyftuhúsi með bílakjallara. Íbúðir fyrir 55 ára og eldri eru á 2- 4 hæðum hússins, en á jarðhæðinni er heimavist nemenda við Menntaskóla Borgarfjarðar.
Húsið er staðsteypt, einangrað og útveggir með seltuþolinni álklæðningu. Gluggar og útihurðir eru ál/tré. Rúmgóðar svalir umlykja hverja hæð fyrir sig og aðskilur steyptur veggur svalirnar milli íbúða. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara.
Stærð íbúðarinnar er 98,3 fm . Að auki fylgir íbúðinni 6,5 fm geymsla í kjallara. Samtals er því stærð íbúðarinnar 104,8 fm skv. skráningu HMS. Svalir íbúðarinnar eru með miklu útsýni, 30,8 fm að stærð, og snúa til suðurs og austurs.
Ekið er í bílakjallara um aðrein móts við Heilsugæslu Borgarness. Lyfta er úr bílakjallara upp á hæðirnar. 4 íbúðir eru á hverri hæð. Forstofa er flísalögð og sameignargangur lagður teppum frá Kjaran.
Nánari lýsing:
Gengið er í hol. Þaðan er gengið í 2 svefnherbergi og baðherbergi. Stofa og eldhús þar innaf mynda alrými. Gengið er úr stofu um rennihurð út á svalir. Gert er ráð fyrir möguleika á svalalokun. Einnig er gengt úr hjónaherbergi út á svalirnar. Á gólfi íbúðarinnar er fljótandi harðparket (Mammut Oak) frá Birgisson. Vandaðar flísar eru í votrými frá Harðviðarval sbr. fyrirliggjandi skilalýsingu seljanda.
Hol: Parket á gólfum og sérsmíðaðir fataskápar.
Herbergi: Parket á gólfum og sérsmíðaðir fataskápar
Baðherbergi: Vandaðar flísar í hólf og gólf og sérsmíðar innréttingar. Vegghengt salerni og sturta. Öll tæki af vandaðri gerð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Eldhús: Parket á gólfi og sérsmíðaðar innréttingar. Helluborð í eyju og bakarofn í vinnuhæð á vegg. Vönduð tæki frá Electrolux.
Stofa og borðstofa: Mjög bjart og fallegt rými með gólfsíðum gluggum. Gengið úr stofu út á svalirnar.
Geymsla: Málað gólf, loft og veggir. Skilrúm og hurð úr stáli.
Stæði í bílakjallara: Stofnstrengur lagður í stæðið tilbúinn til tengingar fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl. Á lóðinni eru að auki 6 bílastæði þar af 2 fyrir hreyfihamlaða.
Sameign: Hjóla og vagnageymsla í kjallara.
Hér er um mjög fallega og vandaða eign að ræða þar sem öll þjónusta s.s. verslun, heilsugæsla og sundlaug er í göngufæri.
Áætlað er að íbúðin verði afhent 1. ágúst 2026
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 98.500.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 3.450.000 ISK |
| Brunabótamat | 0 ISK |
| Stærð | 104.8 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2024 |
| Lyfta | Já |
| Bílskúr | Já |
| Garður | Nei |
| Skráð | 19.02.2026 |








