Borgarbraut 63 íb. 302

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:

Borgarbraut 63, 310 Borgarnes, íbúð 302.

Um er að ræða stórglæsilega þriggja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi með bílakjallara.  Íbúðir fyrir 55 ára og eldri eru á 2- 4 hæðum hússins, en á jarðhæðinni er heimavist nemenda við Menntaskóla Borgarfjarðar.
Húsið er staðsteypt, einangrað og útveggir með seltuþolinni álklæðningu. Gluggar og útihurðir eru ál/tré.  Rúmgóðar svalir umlykja hverja hæð fyrir sig og aðskilur steyptur veggur svalirnar milli íbúða.  Bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara.
Stærð íbúðarinnar er 98,3 fm. Að auki fylgir íbúðinni 7,8 fm geymsla í kjallara. Samtals er því stærð íbúðarinnar 106,1 fm skv. skráningu HMS.  Svalir íbúðarinnar eru með miklu útsýni, 30,8 fm að stærð, og snúa til suðurs og vesturs.
Ekið er í bílakjallara um aðrein móts við Heilsugæslu Borgarness.  Lyfta er úr bílakjallara upp á hæðirnar.  4 íbúðir eru á hverri hæð.  Forstofa er flísalögð og sameignargangur lagður teppum frá Kjaran.

Nánari lýsing:
Gengið er í hol. Þaðan er gengið í 2 svefnherbergi og baðherbergi. Stofa og eldhús þar innaf mynda  alrými. Gengið er úr stofu um rennihurð út á svalir. Gert er ráð fyrir möguleika á svalalokun. Einnig er gengt úr hjónaherbergi út á svalirnar. Á gólfi íbúðarinnar er fljótandi harðparket (Mammut Oak) frá Birgisson. Vandaðar flísar eru í votrými frá Harðviðarval sbr. fyrirliggjandi skilalýsingu seljanda. 
 
Hol: Parket á gólfum og sérsmíðaður fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfum og sérsmíðaðir fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi: Vandaðar flísar í hólf og gólf og sérsmíðar innréttingar.  Vegghengt salerni og sturta.  Öll tæki af vandaðri gerð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Eldhús: Parket á gólfi og sérsmíðaðar innréttingar.  Helluborð  í eyju og bakarofn í vinnuhæð á vegg. Vönduð tæki frá Electrolux.
Stofa og borðstofa: Mjög bjart og fallegt rými með gólfsíðum gluggum.  Gengið úr stofu út á svalirnar.
Geymsla: Málað gólf, loft og veggir. Skilrúm og hurð úr stáli.
Stæði í bílakjallara: Stofnstrengur lagður í stæðið tilbúinn til tengingar fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl.  Á lóðinni eru  að auki 6 bílastæði þar af 2 fyrir hreyfihamlaða.
Sameign: Hjóla og vagnageymsla í kjallara.

Hér er um mjög fallega og  vandaða eign að ræða þar sem öll þjónusta s.s. verslun, heilsugæsla og sundlaug er í göngufæri.
Áætlað er að íbúðin verði afhent 1. ágúst 2026

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 99.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 3.470.000 ISK
Brunabótamat 0 ISK
Stærð 106.1 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 0
Byggingarár 2024
Lyfta
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 19.02.2026