Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Borgarbraut 55, 310 Borgarnes, íbúð 201.
Um er að ræða vandaða 2ja herbergja íbúð á efri hæð í fallegri nýbyggingu sem er steinsteypt fjölbýlishús með 16 íbúðum á 2 hæðum. Íbúðin er 54,3 fm að stærð samkvæmt skráningu HMS. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og eru svalir á efri hæðum en sólpallar fylgja íbúðum á neðri hæðinni. Íbúðin er endaíbúð og er forstofa sameiginleg með íbúð 202. Íbúðin skilast fullbúin með innréttingum og gólfefnum með lokaúttekt á byggingarstigi 4. Gólfhiti er í íbúðum á neðri hæð en ofnar í íbúðum á efri hæð.
Nánari lýsing:
Gengið er upp steyptar tröppur á á efri hæðina. Þaðan er gengið inn í sameiginlega forstofu. Íbúðin skiptist í stofu og eldhús sem mynda alrými, 1 svefnherbergi og baðherbergi. Úr stofu og svefnherbergi er gengið út á 5,8 fm svalir með glerhandriði.
Anddyri er með harðparket á gólfi.
Eldhús með harðparket á gólfi. Innréttingar eru frá Ikea og borðplöturnar eru úr quarts-steini frá HQ steinsmíði. Heimilsitæki eru frá AEG, helluborð og ofn.
Stofan er rúmgóð og björt með flísalagt gólf. Úr stofunni er gengið út á svalir með góðu útsýni.
Svefnherbergi er ágætlega rúmgott. Harðparket á gólfum. Fataskápur á heilum vegg, gegnt út á svalir
Baðherbergi flísar í hólf og gólf, vegghengt salerni, góð innrétting með speglaskáp og walk in sturta. Innbyggð blöndunartæki og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Gert er ráð fyrir 1,9 bifreiðastæðum fyrir hverja íbúð. Lóð er frágengin með malbikuðum og hellulögðum bílastæðum
Hér er mjög vel staðsett eign þar sem öll þjónusta er í göngufæri. Allur frágangur er til fyrirmyndar og traustur byggingaraðili.
Skilalýsing seljanda liggur fyrir á skrifstofu fasteignasölunnar
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 46.900.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 26.550.000 ISK |
| Brunabótamat | 0 ISK |
| Stærð | 54.3 fermetrar |
| Herbergi | 2 |
| Svefnherbergi | 1 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 0 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 21.02.2026 |








