Borgarbraut 55

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf. kynnir eignina:

Borgarbraut 55, 310 Borgarnesi, íb 107.

Um er að ræða vandaða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í fallegri nýbyggingu sem er steinsteypt fjölbýlishús með 16 íbúðum á 2 hæðum. Íbúðin er 85,6 fm  að stærð  samkvæmt skráningu FMR.  Húsið byggt úr forsteyptum einingum og eru svalir á efri hæðum en sólpallar fylgja íbúðum á neðri hæðinni. Íbúðin er endaíbúð og er anddyri sameiginlegt með íbúð 0109.  Íbúðin skilast fullbúin með innréttingum og gólfefnum með lokaúttekt á byggingarstigi 4. Gólfhiti er í íbúðinni og geymsla innan íbúðar.

Nánari lýsing:
Gengið er í sameiginlegt anddyri. Gengið er upp steyptar tröppur á á efri hæðina. Þaðan er gengið inn í sameiginlega forstofu.  Íbúðin skiptist í stofu og eldhús sem mynda alrými, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Úr stofu er gengið út á sólpallinn.
 
Anddyri er með harðparket á gólfi.
Eldhús með harðparket á gólfi. Innréttingar eru frá Ikea og borðplöturnar eru úr quarts-steini frá HQ steinsmíði. Heimilsitæki eru frá AEG, helluborð og ofn.
Stofan er rúmgóð og björt með flísalagt gólf.  Úr stofunni er gengið út á sólpall sem snýr mót suð-vestrii.
Svefnherbergi eru 2 bæði með skápum. Harðparket á gólfum.
Baðherbergi flísar í hólf og gólf, vegghengt salerni, góð  innrétting með speglaskáp og walk in sturta.  Innbyggð blöndunartæki og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
 
Gert er ráð fyrir 1,9 bifreiðastæðum fyrir hverja íbúð. Lóð er frágengin með malbikuðum og hellulögðum bílastæðum og lögn fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.
 
Hér er mjög vel staðsett eign þar sem öll þjónusta er í göngufæri. Allur frágangur er til fyrirmyndar og traustur byggingaraðili.
Skilalýsing seljanda liggur fyrir á skrifstofu fasteignasölunnar.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 62.900.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 36.500.000 ISK
Brunabótamat 0 ISK
Stærð 85.6 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 0
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 21.02.2026