Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir:
Sóleyjarklettur 12, 310 Borgarnes íb. 102. Íbúðin er fullbúin og laus til afhendingar við kaupsamning!
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða nýbyggingu. Eignin er 90.2 fm að stærð skv. skráningu HMS, þar af er 6,6 fm sérgeymsla á geymslugangi á jarðhæð.
Gólf á baðherbergjum eru flísalögð en önnur gólf með harðparketi. Innréttingar eru frá AXIS, parket á gólfum frá Birgison og flísar frá Álfaborg.
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang í anddyri, þaðan er gengið í baðherbergi, 2 svefnherbergi og rúmgott alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu, útgengt er út á lóð úr stofu.
Anddyri: Flísar á gólfi, góður fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfum, rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Góð innrétting, upphengt salerni og walk-in sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Parket á gólfum, rúmgóð innrétting frá AXIS með efri og neðri skápum, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél, helluborð og vifta. Mikið skápapláss og gott vinnurými.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfum. Björt og rúmgóð.
Nýleg og vönduð íbúð í nýju spennandi hverfi í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 61.500.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 51.500.000 ISK |
| Brunabótamat | 58.400.000 ISK |
| Stærð | 91.4 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2023 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 05.03.2026 |






























