Brautarholt 14

355 - Ólafsvík

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Brautarholt 14, 355 Ólafsvík                                     
Um er að ræða rúmgóða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð í tvíbýlishúsi, byggt árið 1958. Eignin er 108.7 fm að stærð skv. skráningu HMS. Húsið er steinsteypt, klætt að utan með steni klæðningu.  Rúmgóður sólpallur á lóð.
 
Nánari lýsing

Gengið er í flísalagða forstofu með fatahengi. Þar er þvottahús á hægri hönd, málað gólf og lítil innrétting. Úr forstofu er gengið inn í hol, parket á gólfi, þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Baðherbergi er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með vegghengdu salerni, sturtu og innréttingu. Svefnherbergi, eru tvö, parket á gólfum og bæði með fataskáp. Stofa með parket á gólfi, þaðan er gengið út á sólpallinn. Eldhús, parket á gólfi, innrétting úr kisuberjavið og borðkrókur. 

Gólfefni, innhurðir og útihurð er endurnýað. Nýjir gluggar í alla hæðina fylgja með. 
 
Í Ólafsvík er fjölskylduvænt umhverfi fyrir fjölskylduna,  grunnskóli, íþróttahús og sundlaug á staðnum.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Hæðir
Verð 28.300.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 28.000.000 ISK
Brunabótamat 51.550.000 ISK
Stærð 108.7 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1958
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 05.03.2026