Borgarbraut 34

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Borgarbraut 34, 310 Borgarnes.
Um er að ræða mjög vel staðsett og rúmgott einbýlishús með aukaíbúð á sér fastanúmeri. Húsið er steinsteypt og á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, og er aðalíbúð með íbúðarherbergi yfir bílskúr 247,20 fm að stærð og séríbúðin 71,9, fm, alls  319,10 fm skv. skráningu HMS.

Nánari lýsing:                                  
Gengið er í anddyri á neðri hæð. Þar innaf er þvottahús og geymslur ásamt gufubaði og snyrtingu. Úr forstofu er gengið upp steyptan stiga á efri hæðina. Af mið-stigapalli er gengt út á baklóðina. Af stigapalli á efri hæð er annars vegar í skrifstofu, eldhús, herbergi og snyrtingu en þetta svæði má nota sem sér íbúð, og  hinsvegar hol, eldhús, stofa og svefnálma með 2 herbergjum og baðherbergi. Gengið er út á svalir úr stofu og hjónaherbergi. 
 
Aðalíbúð:
Anddyri: Flísar á gólfi.
Þvottahús: Epoxymálning á gólfi.
Gufubað: Vatnsgufa, sturta og snyrting.
Geymslur: Dúkur á gólfum
Eldhús: Korkflísar á gólfi. Rúmgóð innrétting, eik , helluborð og  háfur. Bakarofn i vinnuhæð og tvöfaldur ísskápur, borðkrókur og búr inn af eldhúsi.
Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi, parket á gólfum. Gengið úr stofu út á svalir.
Herbergi: Eru 2 á svefnálmu, bæði með parket á gólfum. Mjög rúmgóðir fataskápar í hjónaherbergi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð hvít innrétting, baðkar og sturta. 
 
Aukaíbúð/íbúðarherbergi á 2.hæð
Herbergi: Eru 2. Parket á gólfum og skápar í öðru.
Eldhús: Dúkur á gólfi , lítil eldri innrétting og eldavél
Snyrting: Dúkur á gólfi.
 
Bílskúr:
Er 49,0 fm. að stærð. Epoxy á gólfi, rafdrifin innaksturshurð og gönguhurð þar við hlið. Innréttingar og hillur á veggjum. Þar er vatnsinntak hússins og varmaskiptir á heitu vatni.
 
Íbúð með sérinngangi.
Íbúðin skiptist í forstofu, 2 herbergi, baðherbergi og  stofu og eldhús sem mynda alrými.   
Forstofa: Flísar og fatahengi
Herbergi: Parket á gólfum, skápar í öðru herbergingu.
Eldhús: Parket á gólfi, ágæt hvít innrétting. Bakarofn með helluborði.
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, lítil innrétting og sturta.       
Þvottahús: Lítið þvottahús á gangi.
Stofa: Parket á gólfi  
 
Lóð: Er vel hirt með grasflöt og trám.  Gengið er af svölum út á lóðina. Klettar mynda skemmtilega afmörkun á baklóð hússins. Bílaplan er malarborið en stéttir steyptar.
 
Mjög áhugaverð eign með mikla möguleika. Frábær staðsetning og útsýni. Stutt í íþróttahús, skóla og alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.        

Eigindi eignar

Tegund Einbýli
Verð 130.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 114.750.000 ISK
Brunabótamat 161.850.000 ISK
Stærð 319.10000152588 fermetrar
Herbergi 8
Svefnherbergi 5
Baðherbergi 4
Byggingarár 1978
Lyfta Nei
Bílskúr
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 13.03.2026