Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Bjarkarhraun 8, Bifröst, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á efri hæð í fjölbýlishúsi, byggt úr steinsteyptum einingum 55.8 fm að stærð skv. skráningu FMR. byggt árið 2003. Hitaveita er á svæðinu.
Nánari lýsing:
Gengið er í forstofu. Fataskápur við forstofu. Þar innaf er stofa og eldhús sem mynda alrými. Eldhúsinnrétting og tæki eru af eldri gerð. Baðherbergi er með sturtuklefa og salerni, dúkur er á gólfi og vegg. Svefnherbergi er með fataskáp. Öll gólf eru dúklögð. Góð geymsla er í íbúðinni.
Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða hvort sem er til heilsársbúsetu eða til frístundanota. Bifröst er í fögru umhverfi. Óþrjótandi möguleikar eru til útivistar með vinsælum gönguleiðum að Hreðavatni, á Grábrók og að fossinum Glanna.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 19.000.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 17.750.000 ISK |
| Brunabótamat | 31.150.000 ISK |
| Stærð | 55.8 fermetrar |
| Herbergi | 2 |
| Svefnherbergi | 1 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2003 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 22.05.2026 |


















