Arnarklettur 28

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Arnarklettur 28, 310 Borgarnes.
Um er að ræða fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi sem byggt var árið 2016. Birt stærð er 64.4 fm. skv. skráningu HMS Sér inngangur af svölum og gott útsýni. 

Íbúðin er í útleigu, leigusamningur er í gildi fram að 28.2.2027

Gengið er í íbúðina um sérinngang af stigapalli í forstofu. Þar innaf er stórt hol með parketi á gólfi. Úr holi er gengið í svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Eldhús og stofa mynda bjart alrými, þaðan er gengið út á góðar SV svalir.

Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Hol: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi rúmgóður fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Eikarinnrétting með vaski. Vegghengt salerni og walk-in sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Geymsla: Er innan íbúðar, parket á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi, björt og rúmgóð. Útgengi á svalir.
Eldhús: Góð eikarinnrétting, tengi fyrir uppþvottavél.

Stór sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæðinni.

Hér er vel með farin eign í vinsælu fjölbýlishúsi þar sem allt viðhald hefur verið til fyrirmyndar.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 40.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 39.150.000 ISK
Brunabótamat 38.650.000 ISK
Stærð 64.4 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 2016
Lyfta
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 30.06.2026