Borgarbraut 57

310 - Borgarnes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

 
Um er að ræða mjög góða 3ja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri á 2. hæð merkt 201, í 7 hæða lyftuhúsi, sem byggt var árið 2018. Íbúðin er 83,5 fm að stærð skv. skráningu HMS. Svalir eru 6.3 fm mót suðri. Að auki er sér geymsla ofl. í kjallara sem skráð er 12,8 fm.

Nánari lýsing:
Sameign:

Flísalagt anddyri, lyfta, hjólageymsla og teppalagður stigagangur í sameign.  
Íbúð:
Forstofa rúmgóðir fataskápar.
Eldhús með smekklegri innréttingu og góðum AEG tækjum. Öll tæki í eldhúsi, þar með talinn ísskápur fylgja.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, sturtu og  innréttingu.  Þvottavél og þurrkari sem fylgja við sölu eru í innréttingu á baðherbergi.
Stofa er björt og þaðan er gegnt er út á suðursvalir.
Svefnherbergi eru 2, gott skápapláss í hjónaherbergi.
Geymsla er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.                      
 
Íbúðin er mjög smekkleg og vel um gengin. Nýtt parket er á öllum gólfum utan votrýmis.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 54.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 51.800.000 ISK
Brunabótamat 52.350.000 ISK
Stærð 96.6 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 2018
Lyfta
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 10.09.2026