Skógarlundur 42

300 - Akranes

Lýsing eignar

Nes fasteignasala kynnir fasteignina:
Skógarlund 42, 300 Akranesi. 
Eignin er á byggingarstigi og stendur á lóðinni F2521112 sem er 1770,9 fm að stærð. 

 
Um er að ræða 6 íbúða sambýli á einni hæð ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk. Heildarstærð byggingar er 540.9 fm. Íbúðirnar skiptast í anddyri, alrými sem stofa og eldhús mynda, baðhebergi og svefnherbergi.  Gangur er eftir endilöngu húsinu og  þaðan er gengið inn í íbúðirnar.  Gengið er um svalahurð út á sérafnotareit hverrar íbúðar. Starfsmannaaðstöðu, sem er í norðurhluta hússins, má auðveldlega breyta í íbúðir.
 
Nánari lýsing
Útveggir hússin er klædd stálgrind á steyptri botnplötu. Klæðning útveggja er lerki í ljósum og dökkum til og innra byrði er gifsklæðning á veggjum. Járn er á þaki.  Ytra byrði hússin er ekki fullfrágengið. Gluggar og svalahurðir eru í settar en frágang vantar á sökkul, klæðningu og við þak. Að innan er búið að slá upp fyrir milliveggjum og þeir klæddir að hluta. Einangrun er í lofti en klæðningu vantar. Meðfylgjandi húsinu er mikið magn af klæðningarefni (giifsplötum) til klæðningar innan húss.
 
Íbúðinar eru óinnréttaðar utan þess að baðherbergin eru tilbúin að mestu og komu sem tilbúnar einingar.
 
Ekki er lagt fyrir rafmagni eða vatni í húsinu.
 
Lóðin er ófrágengin malarpúði.
 
Þar sem nokkuð er síðan framkvæmdir voru í gangi, ber byggingin þess merki að hún er ekki fullkomlega varin gegn veðrum.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Eigindi eignar

Tegund Fjölbýli
Verð 285.000.000 ISK
Áhvílandi 0 ISK
Fasteignamat 8.620.000 ISK
Brunabótamat 0 ISK
Stærð 0 fermetrar
Herbergi 0
Svefnherbergi 0
Baðherbergi 0
Byggingarár 0
Lyfta Nei
Bílskúr Nei
Garður Nei
Greiðslubyrði* ------ ISK
Útborgun** ------ ISK
Skráð 28.10.2026