Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina :
Brákarbraut 4, 310 Borgarnes.
Um er að ræða 2 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi á vinsælum stað í neðri bænum. Eignin er samtals 86 fm að stærð skv. skráningu FMR. Íbúðin er 78,3 fm að stærð. Sérgeymsla á jarðhæð 7,7 fm að stærð með sérinngangi fylgir íbúðinni og er inní skráðum fm.
Gengið er inn í anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Innaf anddyri er baðherbergi með salerni og sturtu og rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Og rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Gengið er inn í alrými sem samanstendur af eldhúsi og rúmgóðri stofu, parket á gólfi. Útgengt er á lóð úr stofu.
Rúmgóð og björt eign á vinsælum stað í neðri hluta Borgarness.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala, Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Eigindi eignar
| Tegund | Fjölbýli |
| Verð | 55.000.000 ISK |
| Áhvílandi | 0 ISK |
| Fasteignamat | 45.400.000 ISK |
| Brunabótamat | 56.100.000 ISK |
| Stærð | 86 fermetrar |
| Herbergi | 2 |
| Svefnherbergi | 1 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 2007 |
| Lyfta | Nei |
| Bílskúr | Nei |
| Garður | Nei |
| Skráð | 26.11.2026 |


































