Lýsing eignar
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Bjarkarhraun 2, Bifröst, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð í fjölbýlishúsi, byggt úr steinsteyptum einingum 56.1 fm að stærð skv. skráningu FMR. byggt árið 2003. Hitaveita er á svæðinu.
Nánari lýsing:
Gengið er í forstofu. Þar innaf er stofa og eldhús sem mynda alrými. Fataskápur við forstofu. Eldhúsinnrétting og tæki eru af eldri gerði. Baðherbergi er með sturtuklefa og salerni, dúkur er á gólfi og vegg. Svefnherbergi er með fataskáp. Öll gólf eru dúklögð. Góð geymsla er í íbúðinni.
Eignin er að mestu leyti upprunaleg og hefur verið nýtt til útleigu fyrir nemendur Háskólans á Bifröst.
Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða hvort sem er til heilsársbúsetu eða til frístundanota. Bifröst er í fögru umhverfi. Óþrjótandi möguleikar eru til útivistar með vinsælum gönguleiðum að Hreðavatni, á Grábrók og að fossinum Glanna. Margvísleg þjónusta er á svæðinu s.s. leikskóli, hótel með veitingastað, golfvöllur og líkamsræktarstöð.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Eigindi eignar
Tegund | Fjölbýli |
Verð | 13.000.000 ISK |
Áhvílandi | 0 ISK |
Fasteignamat | 11.600.000 ISK |
Brunabótamat | 20.650.000 ISK |
Stærð | 56.1 fermetrar |
Herbergi | 2 |
Svefnherbergi | 1 |
Baðherbergi | 0 |
Byggingarár | 2003 |
Lyfta | Nei |
Bílskúr | Nei |
Garður | Nei |
Skráð | 02.04.2021 |